Á döfinni
Upphaf skólastarfs á vorönn 2008
Stundatöfluafhending verður 4. janúar kl. 11:00-12:30. Dreifnámsnemar sem ekki koma á stundatöfluafhendingu fá upplýsingar sendar í pósti.
Rútur fara frá Hellissandi kl. 10:20 (Hraðbúð Esso), frá Rifi kl. 10:25, frá Ólafsvík (Olís stöðin) kl. 10:35 og frá Stykkishólmi kl. 10:20 (Íþróttamiðstöð). Rúturnar fara til baka frá skólanum kl. 12:30.
Skólasetning verður þriðjudaginn 8. janúar kl. 8:30 á sal skólans. Kennsla samkvæmt sérstakri stundatöflu hefst að henni lokinni. Minnt er á að bókalisti er birtur á vef skólans, www.fsn.is og eru nemendur hvattir til að ljúka bókakaupum áður en kennsla hefst.
Rútur fara frá Hellissandi kl. 7:40 (Hraðbúð Esso), frá Rifi kl. 7:45, frá Ólafsvík (Olís stöðin) kl. 7:55 og frá Stykkishólmi kl. 7:50 (Íþróttamiðstöð). Rúturnar fara til baka frá skólanum kl. 14:45.