Á döfinni

Hinir árlegu Sólardagar

Hinir árlegu Sólardagar verða haldnir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga dagana 11.-12. febrúar. Brotið verður upp hefðbundið skólastarf og nemendur skólans takast á við önnur en kannski ekki síður krefjandi verkefni en skólabókina.

Á fimmtudaginn verður nemendum og kennurum boðið að taka þátt í ýmsum námskeiðum s.s. jóga, skylmingar, dans, söng, félagsvist og prjónakaffi svo fátt eitt sé nefnt auk þess sem nemendur og kennarar etja kappi í spurningakeppni og ræðumennsku. Á föstudaginn má búast við pönnukökubakstri, Gettu Betur – keppni, dans- og söngleikjanámskeiði og hellaskoðun. Í hádeginu verður svo Gólið, sem er undankeppni fyrir söngkeppni framhaldsskólanna. Sigurverarinn fer síðan í aðalkeppnina sem haldin verður með vorinu.

Hápunktur Sólardaga er síðan árshátíð skólans sem haldin verður í Félagsheimilinu Klifi í Snæfellsbæ á föstudagskvöld.

Samhliða öllu þessu verður í gangi söfnun til styrktar barnastarfi Unicef í samvinnu við Rauða krossinn á Snæfellsnesi. Söfnunin felst í því að safna fötum sem íbúar Snæfellsness telja sig ekki lengur þurfa á að halda, selja þau í skólanum í FSN-Portinu og senda svo afganginn til Haiti.

Allir eru velkomnir í FSN-Portið til að versla og/eða gefa föt og styrkja í leiðinni frábært framtak nokkurra nemenda í FSN. Margir nemendur FSN standa nú í ströngu við að skipuleggja herlegheitin og eiga hrós skilið fyrir framtakið.


Februar_2010_131 IMG_6147IMG_6092IMG_6116

IMG_6098IMG_6103

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur